|
Fyrirtækjasala Íslands ehf. í hnotskurn...
Þjónusta - áherslur
FRUMKVÖÐULL Fyrirtækjasala Íslands er ávallt í fararbroddi Frá stofnun 1994, höfum við verið leiðandi í þjónustu td opnuðum við fyrstir fyrirtækjasala heimasíðu. Við eru enn í dag leiðandi í þjónustu á heimasíðu okkar. Í húsnæðum vorum við fyrstir til að birta upplýsingar m.a. um stærð og fl á plaggötum “til sölu” eða “til leigu”. Við munum ávallt vera fremstir og fyrstir með nýjungar og gæði þjónustu.
GÆÐi - ÞEKKING
Fremstir í þekkingu ! Þegar kemur að miðlun á fyrirtækjum hefur engin fyrirtækjasala meiri þekkingu/menntun/reynslu en starfsmenn og eigendur stofunnar. Óskar Mikalesson var einn af þeim fyrstu hér á landi sem lauk löggildingu til fasteigna- og skipasölu og hefur starfað á þessu sviði í hart nær 35 ár. Valgeir Kristinsson er hæstaréttarlögmaður og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali og hefur nálægt 25 ára reynslu á sviði fasteignaviðskipta og lengur sem lögmaður. Björgvin Ólafur Óskarsson er löggiltur leigumiðlari, löggiltur eignaskiptalýsandi og kerfisfræðingur og hefur starfað á fasteignasölu frá árinu 1990, en tók löggildingarnám til fasteignasölu um 1991. og lauk námi í verðbréfaviðskiptum árið 2006. Hann er nú um þessar mundir í viðskptafræðinámi til B.Sc. gráðu við Háskólann á Akureyri.
Beindu þínum viðskiptum til þeirra sem eru fremstir á sínu sviði og hafa bæði menntun og reynslu til að þú eigir farsæl viðskipti.
RÁÐGJAFAR
Ráðgjafar okkar hafa þekkingu og reynslu! Við leggjum mikla áherslu á að allir ráðgjafar okkar hafi víðtæka þekkingu og reynslu á þeim sviðum sem þeir takast á við. Við erum þekktir fyrir vönduð vinnubrögð. Ekki hika við að láta á það reyna, hvort heldur þú ert kaupandi eða seljandi! FAGMENNSKA
Fagmennska í samningagerð! Allir kaupsamningar og afsöl eru í höndum lögmanns og löggilts fasteigna- og fyrirtækjasala með mjög víðtæka þekkingu á sviði fasteigna- og fyrirtækjaviðskipta. Ef eitthvað kemur uppá reynir fyrst verulega á þekkingu og þjónustu. Hjá okkur færð þú skýr og greinargóð svör við leggjum okkur fram við að reyna að leysa öll ágreingsmál. Við leggjum áherslu á að allir aðilar séu fullkomlega sáttir eftir að samningar og afhending hefur farið fram. VERÐMÖT
Öll verðmöt eru unnin á fljótan og ábyrgan hátt. Við önnumst allar gerðir verðmata hvort sem er á atvinnuhúsnæði, fyrirtækjum eða rekstri.
[Ég óska eftir verðmati] MARKAÐSETNING
Internetið er nútíðin! Við birtum hluta úr söluskrá okkar og upplýsingar um þjónustu okkar á aðgengilegan og þægilegan hátt fyrir viðskiptaavini okkar á internetinu. Einnig eru eignir og fyrirtæki skráð í sölukerfi okkar sendar á allar helstu leitarvélar fasteigna. Fasteignir og fyrirtæki eru jafnan auglýstar í dagblöðum þar sem við á. Frá stofnun höfum við á þessu sviði sem og flestum öðrum sviðum verið fararbroddi. ÖFLUG TÆKNI
Á skrifstounni notumst við við það þægilegasta og öflugusta sem völ er á hverju sinni. Fullkomið símkerfi, tölvubúnað, hugbúnað og vefkerfi. Myndir eru teknar með fullkomnum stafrænum vélum. STARFSMANNASTEFNA
Skýr starfsmannastefna ! Fyrirtækjasala Íslands ehf leggur áherslu á að hafa yfir að ráða heiðarlegu, hæfu starfsfólki sem býr yfir víðtækri faglegri þekkingu, menntun og reynslu. Starfsmenn eru ávallt kurteisir, snyrtilegir , standa við loforð sín og aðstoða viðskiptavininn af þjónustulipurð. Starfsmannastefna fyrirtækisins byggir jafnframt á samvinnu og þekkingu með hagsmuni allra að leiðarljósi. LEIÐARLJÓS
Skýr stefna! Fyrirtækjasala Íslands ehf er metnaðarfullt og leiðandi fyrirtæki sem veitir alhliða þjónustu til fyrirtækja varðandi miðlun rekstrar og rekstrarhúsnæða ásamt sérhæfðari rekstrarþjónustu , ráðgjöf og verðmata á rekstrareignum, fyrirtækjum, rekstri og rekstrareiningum.
|