|
Ertu að kaupa/selja fasteign eða fyrirtæki ? Mjög mikilvægt er í miðlun á fasteignum og fyrirtækjum að þekking, reynsla, áreiðanleiki og menntun þeirra sem umsýsla viðskiptin sé fyrir hendi. Vertu viss um að þú fáir bestu þjónustu sem völ er á. Hjá Fyrirtækjasölu Íslands starfa sérfræðingar sem allir hafa menntun og löggildingu á sínum sérsviðum. Stærð söluskráar er hvorki vísbending um hver er með mest af fasteignum og fyrirtækjum til sölu/leigu, né heldur hvort viðkomandi aðilar eru allir sérfræðingar á sínu sviði.
Viltu taka á leigu eða leigja út atvinnuhúsnæði ? Fyrirtækjasala Íslands er öflug í miðlun á atvinnuhúsnæði til leigu og hefur í gegnum árin komið sér vel á framfæri til að finna væntanlega leigjendur, bæði í fasteignabálkum dagblaðanna og í ljósvakamiðlum. Við höfum lagt mikinn metnað í að þjónusta fyrirtæki með leiguumsýslu á rekstrartengdum eignum fyrir fyrirtæki og eignir þeirra, jafnframt sem við höfum ávallt haldið vel utan um lista af væntanlegum leigjendum.
Þarftu verðmat eða áætlanagerð fyrir reksturinn ? Fyrirtækjasala Íslands hefur sérhæfða þekkingu og reynslu þegar kemur að verðmati og áætlanagerðum fyrir rekstrarfélög. Starfsmenn stofunnar gera verðmat á fyrirtækjum og rekstrartengdum fasteignum. Jafnframt aðstoðum við fyrirtæki við að útbúa rekstraráætlanir sem koma fyrir eigendur, banka og aðrar lánastofnanir.
Þarftu þjónustu við fyrirtækið ? Við höfum aðstoðað fyrirtæki og einstaklinga við að stofna , reka , skipta upp og slíta hlutafélögum. Sérhæfing er ávallt ávísun á að þú færð markvissari þjónustu. Við vinnum að þessum málum allan daginn en ekki bara þegar ekkert er að gera í öðru.
Fyrirtækjasala Íslands hefur síðan 1994 sérhæft sig í þjónustu við fyrirtæki. Við höfum lagt áherslu á fyrirtæki og atvinnuhúsnæði. Sameiginleg reynsla okkar spannar um 78 ár. Vertu viss um að þinn þjónustuaðili valdi sínu verki.
|