15 ÁRA FARSÆL MIÐLUN FASTEIGNA OG FYRIRTÆKJA

Gjaldskrá

1.     ALMENNT UM ÞÓKNUN

Gjaldskrá þessi gildir nema um annað hafi verið samið.
Allar upphæðir í gjaldskrá þessari eru án 25,5 % virðisaukaskatts (vsk.) nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Þegar þóknun er ákvörðuð sem hlutfall af söluverði leggst virðisaukaskattur ofan á það hlutfall.
Öll þjónusta Fyrirtækjasölu Íslands ehf., hér eftir nefnt fasteignasalan,  er virðisaukaskattskyld samkvæmt lögum.

Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er, vegna sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa: sbr. ákvæði nr. 99/2004 um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu og reglugerðar nr. 939/2004 um fasteignasala;
og vegna miðlunar á leiguhúsnæði: sbr. ákvæði húsaleigulaga nr. 36/1994 ásamt síðari breytingum og reglugerðar 675/1994 um leigumiðlanir og leigumiðlara.

Söluþóknun innifelur fyrir seljanda:
Gerð kauptilboðs, kaupsamnings, afsals, verðmat, skuldskeytingar áhvílandi lána, auglýsingar (nema sérauglýsingar) og aðra skjalagerð sem fellur að kaupsamningi. Skuldaskil eru ekki innifalin í söluþóknun og greiðist sérstaklega og eftir tímagjaldi.

Leiguþóknun innifelur fyrir leigusala:
Gerð leigusamnings, útprentanir úr hlutafélagsskrá, útprentun úr vanskilaskrá (VOG), auglýsingar (nema sérauglýsingar), gagnaöflun og skjalagerð sem fellur að leigusamningi.

Umsýsluþóknun innifelur fyrir kaupanda:
Ráðgjöf m.a. vegna hugsanlegra kaupa, tilboðsgerð, skuldskeytingar, verðmöt, umsýsla skjala til þinglýsingar (kaupandi hefur þó rétt til að þinglýsa skjölum sjálfur), aðstoð við leit á húsnæði.

Umsýsluþóknun innifelur fyrir leigutaka:
Sérfræðiráðgjöf, tilboðsgerð, umsýsla skjala til þinglýsingar, gerð trygginga s.s. tryggingarvíxils og/eða tryggingabréfs, aðstoð við leit á húsnæði.


2.   SÖLUÞÓKNUN / UMSÝSLUÞÓKNUN, KAUP OG SALA

Lágmarks söluþóknun seldra verðmæta er kr. 290.000,-, en að öðru leiti gildir að söluþóknun er prósenta af heildarsöluverði og eru með eftirfarandi hætti:

Sala fasteigna og skráðra skipa  í almennri sölu:
3,0% af heildarsöluverði hins selda. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.

Sala fasteigna og skráðra skipa í einkasölu:
1,95 % af heildarsöluverði hins selda. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.

Sala fyrirtækja og rekstrar í almennri sölu:
6,0% af heidarsöluvirði hins selda, þ.m.t. vörulager. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.

Sala fyrirtækja og rekstrar í einkasölu:
4,0% af heildarsöluvirði, þ.m.t. vörulager. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.

Sala með makaskiptum:
Kaupandi setur eign sem greiðslu uppí eign á söluskrá fasteignasölunnar:
1,3% af heildarsöluverði eignar. Innifalið öll skjalagerð og gagnaöflun.

Sérfræðiaðstoð við leit og kaup fasteigna, fyrirtækja, reksturs og skráðra skipa:
0,8% af heildarsöluverði, þó aldrei lægri en kr. 150.000,-, hvort sem eignin er í sölu hjá fasteignasölunni eður ei.

Sala bifreiða, sem og annarra lausafjármuna, sem sett eru sem greiðsla uppí kaupverð fasteigna:
6,0% af heildarsöluverði auk vsk., en þó aldrei lægri en kr. 70.000,-.

Sala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum:
1,6% af heildarsöluverði, enda sé eignin sett í einkasölu, annars skv. b. -lið 2.gr. gjaldskráar.
Sala sumarhúsa og/eða frístundalóða :
5,0% af heildarsöluverði hins selda. Innifalið auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.

Umsýsluþóknun sem kaupandi greiðir:
Kr. 29.900,-. Vegna milligöngu um kauptilboðsgerð, kaupsamnings- og afsalsgerð, sérfræðiráðgjöf, aðstoð vegna lánastofnana, skuldskeytingar, að annast þinglýsingu á öllum skjölum fyrir hönd kaupanda, og vegna þeirra skjala sem unnin eru í hans þágu sem og rágjöf.

3.   LEIGUÞÓKNUN / UMSÝSLUÞÓKNUN, LEIGA FASTEIGNA

Lágmarks þóknun vegna milligöngu á leiguhúsnæði er kr. 150.000,-, en að öðru leiti er þóknun með eftirfarandi hætti:

Fyrir binditíma leigusamnings:
 - sem er skemur en 6 mánuðir greiðist sem svarar hálfri mánaðarleigu auk vsk. Sé eign í einkaútleigumeðferð skv. Skriflegum samningi þá er veittur 5% afsláttur. Þó aldrei lægri en lágmarksþóknun, nema um annað sé samið.
 - til 6 mánuða, en innan við 5 ár greiðist sem svarar 1,0x mánaðarleigu auk vsk. Sé eign í einkaútleigumeðferð skv. skriflegum samningi þá er er veittur 15% afsláttur. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.
 - til 5 ára, en innan við 10 ára greiðist sem svarar  1,8x mánaðarleigu auk vsk. Sé eign í einkaútleigumeðferð skv. skriflegum samningi þá er veittur 20% afsláttur. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.
 - til 10 ára eða lengur greiðist sem svarar 2,8x mánaðarleigu auk vsk. Sé eign í einkaútleigumeðferð skv. skriflegum samningi þá er veittur 25% afsláttur. Innifalið almennar auglýsingar, öll skjalagerð og gagnaöflun.

Umsýsluþóknun sem leigutaki greiðir:
Kr. 19.900,-Vegna milligöngu um leigutilboð og leigusamnings, sérfræðiráðgjöf, aðstoð vegna tryggingavíxils og/eða tryggingabréfs fyrir skilvísum leigugreiðslum og skilum á húsnæði, aðstoð við úttektarlýsingu, þinglýsing á leigusamningi,og öllum skjölum fyrir leigutaka og vegna þeirra skjala sem unnin er í hans þágu sem og ráðgjöf.


4.   VERÐMAT / ÚTTEKT FASTEIGNA OG FYRIRTÆKJA

Fyrir skoðun og verðmat á smærri fasteign er grunngjaldið kr 35.000,-. Aukalega greiðist fyrir alla gagnaöflun. Smærri fasteign telst undir 200 fm að birtri stærð.

Fyrir skoðun og verðmat á stærri fasteign er grunngjaldið kr 65.000,-. Aukalega greiðist fyrir alla gagnaöflun. Stærri fasteign telst 200 fm að birtri stærð, eða stærri.

Fyrir skoðun og verðmat á litlu fyrirtæki/rekstri er grunngjaldið kr 45.000,-. Aukalega greiðist fyrir alla gagnaöflun. Lítið fyrirtæki telst með árs-brúttó veltu undir 80 millj.

Fyrir skoðun og verðmat á stóru fyrirtæki/rekstri er grunngjaldið kr 75.000,-. Aukalega greiðist fyrir alla gagnaöflun. Stórt fyrirtæki telst með árs-brúttó veltu 80 millj. og yfir.

Grunngjaldið miðast við að fyrir liggi allar upplýsingar sem til matsstarfanna þarf. Auk grunngjalds greiðist tímagjald eftir umfangi matsins sem og ferðakostnaður sem af matinu hlýst.

Seljist fyrirtæki/rekstur eða fasteignin hjá fasteignasölunni er verðmatið endurgreitt þannig að það dregst frá söluþóknun seljanda við greiðslu hans á söluþóknun við kaupsamning.

5.   ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF

Þóknun fyrir að aðra vinnu og/eða ráðgjöf sem veitt er á fasteignasölunni og sem ekki er tilgreind sérstaklega í gjaldskrá greiðist samkvæmt tímagjaldi gildir þá einu hvort vinnan er veitt munnlega eða skriflega.

Lágmarksgjald vegna gerðar veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa og skíkra skjala sem ekki eru hluti af öðrum störfum er þóknun kr. 9.500.-/pr skjal.

6.   STOFNUN HLUTAFÉLAGA
a.Þóknun fyrir aðstoð vegna stofnunar einkahlutafélags:
grunngjald fyrir skjalagerð er kr 55.000,- og til viðbótar grunngjaldi greiðist tímagjald sé um meira að ræða en einfalda skjalagerð. Veittur er 50% afsláttur fyrir þá sem eru að kaupa eða selja hjá fasteignasölunni.
b.Þóknun fyrir aðstoð vegna stofnunar hlutafélags:
grunngjald fyrir skjalagerð er kr 85.000,- til viðbótar grunngjaldi greiðist tímagjald sé um meira að ræða en einfalda skjalagerð. Þóknun vegna aðstoðar við breytingar á samþykktum hlutafélaga eða einkahlutafélaga greiðist grunngjald kr 29.800,-, auk þess sem greiðist tímagjald sé um meira að ræða en einfalda skjalagerð.


7.   ÝMIS ÁKVÆÐI / ÖNNUR GJALDTAKA

Öflun gagna/ umsýslugjald
Við sölu/leigu hjá fasteignasölunni greiðir seljandi ekki fast gjald vegna öflunar gagna vegna kaupsamnings/leigusamnings svo sem vegna veðbókarvottorða, fasteignamatsvottorðs, ljósrita, teikninga og ýmissa skjala jafnframt vegna þinglýsingarmeðferðar kaupsamnings og afsals. Sé eignin ekki seld hjá fasteignasölunni og/eða eignin er tekin af skrá og/eða seld annarsstaðar hvort sem um ræðir með öðrum hætti en aðkomu fasteignasölunnar, greiðist fast gjald kr. 29.900.- auk vsk fyrir skráningu og öflun gagna sem og auglýsinga í blaðaauglýsingum óháð ákvæðum söluumboðs eigna í einkasölu/leigu eða almennri sölu/leigu.

AUGLÝSINGAR
Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal greiðast sérstaklega.

EIGNAUMSÝSLA OG SKULDASKIL
Þóknun fyrir vinnu við eignaumsýslu og gerð samninga um skuldaskil er samkvæmt tímagjaldi.

TÍMAGJALD
Tímagjald og útseld tímavinna fasteignasölunnar er kr. 12.500 auk vsk.
Við öll verð bætist virðisaukaskattur 25,5%


-------------------------------------------------
Ofangreind gjaldskrá gildir frá og með 1. janúar 2009.
 


|  Fyrirtækjasala Íslands ehf. | Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður, Iceland. | tel: (+354) 520 3500, fax: (+354) 520 3501  | atv @ atv.is
Valgeir Kristinsson, hrl., löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
| Björgvin Ólafur Óskarsson, löggiltur leigumiðlari og eignaskl. | Óskar Mikaelsson, próf í fasteigna- og fyrirtækjasölu |


| Allur réttur áskilinn - All rights reserved © 2006-2009 Fyrirtækjasala Íslands ehf. |