|
Fyrirtækjasala Íslands ehf byggir upplýsingarnar sem fram koma á heimasíðunni sem og annars staðar m.a. á heimildum sem fyrirtækjasalan/fasteignasalan hefur fengið frá eiganda/eigendum eða forsvarsmanni/forsvarsmönnum viðkomandi fyrirtækis eða atvinnuhúsnæðis sem er til sölumeðferðar .
Fyrirtækjasalan/fasteignasalan hefur ekki ástæðu til að vantreysta þeim upplýsingum en getur ekki ábyrgst að þær séu réttar. Þetta eru m.a upplýsingar um veltu fyrirtækja, ýmsar rekstrartölur, verð, leigukjör, lagerstærð, m2 tölur, áhvílandi veðskuldir og ýmislegt annað sem kemur fram í söluyfirlitum.
Allar upplýsingar eru einnig birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.
Væntanlegum kaupanda ber að kanna sjálfur allar þær upplýsingar sem hann telur skipta máli.
Upplýsingar þær sem koma fram á heimasíðunni, geta breyst án fyrirvara og ber fyrirtækjasölunni ekki skylda til að uppfæra þær.
Sá sem fer inn á heimasíðuna, fellst á að gæta fyllsta trúnaðar varðandi þær upplýsingar sem þar koma fram.
Sá sem fer inn á síðuna samþykkir að nýta ekki þær upplýsingar, myndir eða annað sér til atvinnu.
Skriflegt samþykki Fyrirtækjasölu Íslands ehf þarf til að endurbirta upplýsingar sem koma fram á heimasíðunni, dreifa þeim eða afrita þær, og skiptir þá ekki máli í hvaða tilgangi það er gert eða með hvaða hætti.
|